Dreymdi þig aftur í nótt ?

Hæ,

Skrítið hvað mig dreymir þig mikið! Í nótt sastu inni á Grensásvegi.... þú sast í litla herberginu við hliðina á skrifstofunni þinni. Þar sast þú feitur og pattaralegur með reiknivélina og tölvu fyrir framan þig. Ég held þú hafir verið að segja mér að hætta þessu væli! Ég nebblega gat ekki annað en grátið í gær þegar ég opnaði jólagjafirnar frá ykkur ömmu, hef annars staðið mig vel og ekki verið í neinum vælukór, merkimiðarnir og jólagjafirnar frá ykkur ... æææ... það var bara eitthvað svo auðvelt að gráta bara! En.... nei nei.. í nótt sagðir þú mér að þú værir hér enn... hlóst að mér og sagðir mér að hætta þessari vitleysu... sagðir mér að þú værir ennþá niðri á skrifstofu og að þér liði bara vel. Þó að þú gætir nú ekki unnið eins mikið og áður þá gætir þú nú spjallað við kúnnana og svona!

Meira ruglið ... rugli bull... takk fyrir að koma og hugga mig í nótt gamli minn, ég sakna þín á hverjum degi og nýt þess að hafa myndirnar af þér. Sakna þess að vita ekki af þér heima á Íslandi! ... og bara svo þú vitir það þá finn ég líka fyrir þér... held þú hafir bara aldrei verið eins nálægt mér. 

Gleðileg jol og takk fyrir fallegar gjafir,

Love you, þín Eva Lind / Ronja.

 


Dreymdi þig í nótt!

Skrítið... mig dreymdi þig í nótt. Ég var að segja þér frá jarðaförinni þinni, hvað hefðu komið margir og hvernig kistu hefði verið valið fyrir þig. Var að segja þér frá öllu því sem hafði verið gert síðan þú fórst. Svo var ég að furða mig á því að ég væri að tala um þetta við þig í draumnum. Fannst það ekki passandi! Ég er eitthvað svo "andlaus" finnst svo erfitt að skrifa, bara eitthvað svo tilgangslaust ... ekki það að ég sitji alla daga og sakni þín og líði illa. Mér líður voða vel... en ég er samt voða svona tóm. Nenni eiginlega ekkert þessu "small talk" við fólk, ekki nema þá allara nánustu, Henrik sleppur ekkert ;)

Annars líður okkur voða vel með að vera komin heim, það er sem betur fer alltaf best heima. Ísak Máni gengur vel í leikskólanum og Elisabeth Mai á fullu, vægarst sagt. Við erum farin að halda að hún sé líka sterkari á vinstri eins og Máni. Því ertu nú örugglega stolltur af ;)

Við erum búin að hella okkur í jólaundirbúning. Búin að skreyta, kaupa gjafir og kort. Erum byrjuð á jólahreingerningunni...hahha... ekki eins og þú vitir mikið hvað það felur í sér... hih... í ár er undirbúningur jólanna kósí.. ekkert stress, enda bíllaus og gersamlega í 1. gír.  Svo Finnst mér þú eitthvað svo nálægt mér, veit ekki af hverju. Við erum með myndir, kerti og engla á lítilli hillu hér inni í stofu. Kannski er það þess vegna? Allavega finnst mér voða notalegt hvað þú ert nálægur. Það gæti líka verið Lacoste peysan sem ég erfði af þér. Hún hlýjar mér oft ... eins og þegar við vorum að vinna saman ;)

Í dag gengum við inn í skóg, ca. 30. mínotna labb, þar var LIONS með jólatréssölu og jólaskemmtun fyrir börn. Við fundum okkur jólatré og söguðum sjálf, svaka sport. Síðan var allskonar jólakósíheit í boði. Mér fannst ég alveg vera á heimaslóðum með öll þessi Lions merki í kringum mig. Við Henrik erum alveg ákveðin í að einn daginn ætlum við sko að gerast Lions meðlimir ... ekki spurning. Sólin skein og þar sem við gengum heim á leið töluðum við Henrik um hvað við værum nú eiginlega bara ánægð með að vera bíllaus. Yndislegt að ferðast allt svona gangandi eða hjólandi. Held ég hafi aldrei séð þig hjóla? Kanntu að hjóla? 

Mai hóstar inni í rúmi, hóst.. það er nú eitthvað sem loðir við okkur öll!  .... jæja.. hún er eitthvað að róast... þú ert kannski að leggja þínar máttugu hendur á hana... þvílíkur lækningakraftur í höndonum þínum... magnað!

Jæja... þá er held ég tími til að fara að sofa, þú kyssir ömmu kannski frá mér, maður getur ekki annað en haft pinku áhyggjur af henni. Þó ég viti vel að hún sé dugleg þá veit ég líka að þetta er erfitt! Bið að heilsa hinum stjörnonum... sjáumst þín Eva.

 


Rútan fer kl. 8:15 !!!

Jæja, þá er taskan pökkuð, full af fötum á okkur Mai, jólagjöfum og svo fötum á litlu nýju Erlu og Snorradóttur.

Feðgarnir eru búnir að TJALDA inni í Elisarbethar herbergi, og stefna á útileigu á meðan stelpurnar eru í burtu .... hahaha... einnig eru þeir búnir að teikna tattoo á hvorn annan, út um ALLT !!!!! Planið er að vakna á morgnanna og fara á veiðar... þá ætla þeir að veiða morgunmatinn út í skáp og eitthvað ;) Klikkaðir !!! Já, það er rétta orðið .. en kósí.. þar sem mér finnst erfitt að skilja guttann minn eftir, þá gerir þetta allt auðveldara að Henrik nenni að standa í svona veseni til að honum líði vel :) 

Hann litli Ísak Máninn okkar er nefnilega búinn að eiga voða erfitt og á enn. Hann sýnir það ekki í hversdagsleikanum en á næturnar vaknar hann grátandi og segist vilja fara heim í gamla húsið og getur ekki hætt að gráta. Hann er sterkur á daginn og almennt glaður en innst inni er hann í sorg og það er ekki skemmtilegt að vera mamma þegar maður er búinn að koma barninnu sínu út í eitthvað sem hann helst ekki hefði valið sjálfur! Stundum hugsa ég... hvað er ég búin að gera ????? En.. ég reyni að segja sjálfri mér að þegar framm í tímann er litið verði hann glaður og að þetta geri hann bara sterkann :s

En... nóg um það ... Henrik er ofur pabbi þegar allt kemur til alls og ég veit að þeir eiga eftir að njóta sín í botn og að ormurinn verður vel dekraður á meðan ég er í burtu!

Ég er hrikalega stressuð yfir ferðinni heim, ég er stressuð yfir heimkomunni og líður rosalega furðulega með þetta allt saman. Ég er samt svo smátt farin að hlakka til að sjá ykkur og sína litlu fallegu prinsessuna mína. Ég ætla að vera með bækistöð hjá mömmu svo ef ykkur langar að sjá mig... LET ME KNOW, mig langar að sjá ykkur!  Annars stefni ég á að vera mikið hjá ömmu og afa og svo auðvita á Grensásveginum hjá UNNI, HELGU, EISA, DANÍEL OG GUÐNÝU (vinnufélögum) ... þeirra sakna ég helling og ætla pottþétt að njóta þeirra svoldið á meðan ég er heima!

Þá er ekki annað að segja en, kæra Ísland við sjáumst á morgun! 

Góða nótt, sofið rótt, í alla nótt, guð geymi ykkur og dreymi ykkur vel.... kv. Eva Lind.

 


Á leiðinni heim ;)

Já, nú komum við Mai á sunnudaginn. Máni hefur fengið að vita að mamma þarf að fara að vinna í kaupmannahöfn og meira fær snáðinn ekki að vita. Þeir feðgar geta haft það kósí hér heima í viku á meðan við stelpurnar förum heim og knúsum langafa og langömmu svoldið vel og rækilega. Síðan viljum við nottlega líka hitta þig víst við nú erum heima.

Á morgun ætlum við fjölskyldan að kaupa restina af jólagjöfum svo við getum komið þeim heim. Pabbi ætlar að sækja okkur skvísurnar á sunnudaginn svo það verður æði. Því vex maður aldrei upp frá! Mér mun örugglega alltaf finnast spennandi þegar pabbi flýgur flugvélinni :) 

EM vöknuð og ég á eftir að gera föstudagshreingerninguna svo tölvutíminn er á þrotum.....

Love ya all.. Eva L.


Heimþrá!

Ohhh.... lífið er bara alls ekki alltaf dans á rósum. Oh... fannst þetta bara erfiður og leiðinlegur dagur!

Byrjaði með því að Máni var hrikalega lengi að koma sér í föt og þurfti svo að finna einhvern einn bíl til að taka með í leikskólann, þið vitið ... þennan gula með lego þakinu ???? Já! Einmitt !!! Við snérum herberginu á hvolf til að finna þennan bíl, og þolinmæðin mín var löngu þrotin þegar hann ákvað að sætta sig við einhvern rauðann bíl Angry

Síðan voru rosa margir veikir í leikskólanum svo honum langaði ekki að vera í leikskólanum, en það gekk og ég fór beint í mömmu-hóp. Það gekk nú bara vel, ég er samt feimin ennþá og er ekki beint að njóta mín. Það tekur mig tíma að venjast hóp og ég þarf smá aðlögunartíma þegar það kemur að nýjum vinum. Kannski að Máni hafi þetta bara frá mér að þrufa að taka smá tíma í þetta! Blush

Síðan kom ég heim og fékk þær gleði fréttir að ég ætti von á litlum BRÓÐUR, Birna kom úr 20. vikna sónar og allt eins og það á að vera :) En á sama tíma sagði hún mér frá því hvað AFI gamli væri orðinn svo veikur Crying Ég fann bara hvernig kökkurinn í hálsinum varð stærri og stærri og hvað mig langaði bara að fara beint heim eftir símtalið. En... svoleiðis var það ekki, ég þurfti að labba upp í leikskóla með köggul sem bara stækkaði og stækkaði. Hrikalega var langt upp í leikskóla. Þar voru fóstrurnar svo sætar að segja mér að Máni hefði leikið EINN allan daginn og að honum leiddist og vildi ekki leika við neinn ??? OK !!! Köggulinn varð HUGE !!!! Síðan tröðkuðum við heim á leið og um leið og ég sá Henrik þá: buhuhu.... gat ég ekki meir. Köggulinn losnaði og míns bara grét Frown

Núna sit ég í sófanum heima, allir sofa nema ég og mig langar ekkert að fara að sofa .... langar bara að það verði morgundagur svo ég geti farið að skoða það hvort ég komist heim !!!!! Veit að ég get ekki tekið Mána með mér svo það finnst mér hrikalega erfitt Errm En hann hefur nú líklegast gott af því að vera einn með pabba sínum og hver veit nema hann verði bara sterkari fyrir vikið! 

jæja... ætla að fara að finna KOLLA kúra mig inn í hann og lofa honum að grípa tárin mín eins og hann svo tryggt hefur gert í einhver 25 ár. Góða nótt Eva Lind.


Tóti tannálfur mætir í nótt!

Ísak Máni missti sína 1. tönn í fyrradag og í nú er tönnin komin undir kodda. Öll fjölskyldan bíður spennt eftir að Tóti tannálfur mæti með gullpening fyrir snáða ;) Tóti tannálfur skrifaði mér alltaf bréf þegar ég var lítil. Ég man ekkert hvað hann skrifaði en ég man að mér þótti bréfin hans alveg æði! Tóti tannálfur skrifaði alveg eins og pabbi, en aldrei grunaði mig að þeir væru sami maðurinn !!!! (Það eru tvær tennur í viðbót lausar)

Elísabeth Mai varð 6 mánaða í dag (glittar í tvær litlar tönnslur) og í tilefni þess héldum við hálfa afmælisveislu fyrir hana! Lukkaðist svaka vel, ég bakaði þessar líka geggjuðu kræsingar, held ég sé að komast í mömmu klúbbinn ... tók myndir sem verða pottþétt settar á Barnaland. Mér finnst svo kósí að halda uppá þetta fyrsta hálfa ár í lífi barnanna minna. Hér voru kliptir prinsessu pappa diskar og servéttur voru líka hálfar, bakaðar hálfar kökur og húllum hæ á bæ! Litla frk. Mai er með svaka sýkingu í augum og hor í nefi svo hún var eins og hún væri ný komin heim af næturlífinu og hefði lent í slag á öllum myndum, en hún var samt voða sæt í hvíta kjólnum frá Lölu sinni, af henni verða auðvita líka settar myndir á Barnaland. Við fengum brúðkaupsgjöf frá Heidi og Lars, myndavél.... JÚHÚ !!! Erum búin að kvarta yfir gömlu myndavélinni í þau þrjú ár sem við höfum átt hana, svo við erum HOPPANDI kát. Mai fékk fallegan silfur sparíbauk í skírnargjöf, ásamt þess að fá litla 6 mánaða pakka :)

Annars er hér rigning og rok og kalt, ekki farið að frjósa en samt kalt. Við erum ekki að fýla það þar sem við erum labbandi allt sem við förum svo ullabjakk segi ég bara. Ég get samt ennþá hjólað og verslað og fyllt litlu sætu körfuna á hjólinu, svo við fáum ennþá að borða! haha...  En sem betur fer varir þetta ekki lengi hér og förum við að sjá bjartari tíma strax í lok janúar, er mér sagt ....

Í gærkvöldi var "Börnekulturnat" svona barna menningarnótt hér í bænum, rosa sniðugt og kósí. Við fórum auðvita og nutum kvöldsins öll í skíðabuxum og úlpum. Fórum í fjársjóðsleit á bókasafninu, huggum úr ís, lékum með ljós, prófuðum slökkviliðsbíl og fengum heitt kakó. Bara kósí !!! Íslendingarnir við vorum klædd eins og við værum á leið á norðurpólinn...hahah.. Ísak Máni fór svo heim með Nicolaj og Lauru of fékk að sofa hjá þeim og við Henrik og Mai komum við á pizzaría bæjarins og tókum pizzu með heim sem var vel pökkuð inn í sæng og troðið ofaní vagninn hjá Mai og hér sátum við langt fram á nótt og nutum pizzu, rauðvíns og sjónvarps :) 

Hér er ég farin að hlakka geggjaðslega mikið til þess að mínar æðislegu og uppáhalds veninder komi í heimsókn (Karen, Karitas og Heiðdís) fæ alveg fiðrildi við tilhugsunina !!!! 18 dagar í þessar elskur! Nú er bara að telja niður :)

Jæja... nú er best að fara að sjá hvort það sé til gullpeningur á heimilinu .....

Ein spurning... Óli lokbrá.. er það bara svefnálfur einhver ???? Er alltaf að syngja ... Blunda þú nú barnið mitt, bráðum kemur nótt, Óli lokbrá læðist inn, létt og ofur hljótt.... bla bla bla.... Svo spurði Máni...hver er ÓLI LOKBRÁ ??? hmmm.... stóð á gati !!!!!!

Góða nótt, Eva Lind.

 


Barnabætur !!!!

Hædí hó allir mínir heimalingar,

Maður er bara farin að sakna ykkar ansi mikið, svei mér þá! Allt gengur þó vel og allt orðið eðlilegt eftir frí og heimsókn frá mömmu. 

Við fengum BARNABÆTUR í síðustu viku... og Ó MÆ GOD... hér gætum við nú lært eitthvað !!!!

Já takk fyrir sælir... á Íslandi áttum við rétt á litlum sem engum barnabótum, æææ.. þið vitið tekjutengt og svo fuðrar þetta bara upp í skattinum sem maður endar með að skulda eftir uppgjör. En ... hér eru sko aðrar bollur í súpunni... 

Við fengum rúmar 7.000 dk. krónur sem eru nú bara einhver 160.000 ísl. kr. að minnsta kosti og það fá allir sem eiga tvö lítil börn... sama hvað þeir þéna eða hvað þeir eiga að borga í skatta... Þetta er bara föst tala þriðja hvern mánuð !!!!! ÓTRÚLEGT !!!!Ég hélt þetta væri djók þegar ég fékk sendingu um að þetta væri væntanlegt á reikninginn, en... nei nei.. svona er þetta bara!

En.. jæja.. Elisabeth Mai að vakna úti í vagni.. ef einhver er með góð barnavagna svefn ráð þá eru þau öll vel þegin.. hún er dauð þreytt en vaknar samt ... eins og það sé eitthvað sem vekji hana... en HVAÐ? 

Kveðja heim... Eva Lind.


Kveðja frá Hornslet

Aloha!

Ég á að vera að gera eitthvað allt annað en að skrifa hér akkurat núna, en ég er bara í einhverri svona holu þar sem ég nenni engu, og kem mér ekki í að klára það sem þarf að klára! Glápi bara á sjónvarpið (ekki segja neinum) Blush

Henrik aftur á móti er fullur eldmóði og málaði allar mubblurnar HVÍTAR í gær! Það er hrikalega kósi og fallegt hér núna og loks finnst okkur við vera komin heim. Um helgina ætlum við svo í uppáhalds ILVA að kaupa smá puntu dót því við fengum peninga í brúðkaupsgjöf frá Mömmu, Huldu, Lottu, Binna og Bjöss + fjölskydum  svo við ætlum að kaupa okkur brauðkaupsgjafir ;) Ekki slæmt !!!

Ég get þrátt fyrir að vera mega löt grobbað mig að því að hafa borðað BARA holt í 4 heila daga! Haha.. svaka dugleg .. en í alvöru það er sko mikið fyrir mig sem elska sykur og vanalega borða slatta af honum daglega! 

Annars gengur allt bara þrusu vel, Mána líður betur í leikskólanum og Mai bara alger pæ... Við Mai erum byrjaðar í mömmuhóp sem við hittum einu sinni í viku og okkur líkar bara vel. Það eru tvær stelpur og fjórir strákar í hópnum og hin stelpan heitir Mai !!!! Eins og okkar Mai.. hrikalega fyndið .. þetta er ekki algengt nafn svo okkur brá báðum Grin

Bimm bamm búmm... knús djús... Heyrumst, Eva Lind kind.


Hágrátandi, skúrandi fyrir framan OPRAH!

Guð minn góður hvað er bara ekki annað hægt en að stór gráta stundum fyrir framan Oprah...

Fyrsta prógramm var um börn fædd fyrir tímann .... þvílík kraftaverk !!!! Gerði mig mjúka og voðalega glaða samt líka sorgmædda og gæsahúðin bara út um allt!

Þegar ég hélt að nú væri þetta nú búið... eitt parið missti litlu stelpuna sína og hitt parið fór heim  með strákinn sinn. og ég andaði léttar og bara fór aftur í það að skúra ... en þá gerðist það óhugsanlega!

Þáttur um HUNDA sem hjálpa föngum að vinna úr tilfinningum og bjarga þeim frá ömurlegu lífi !!! ÓMG!

Skúringargræjan stendur ss. ennþá á miðju gólfinu og ég er föst yfir OPRAH !!!!!

Síðan er ég alvarlega farin að pæla í hvernig ég að á að lokka fólkið sem á húsið sem við leigjum til að leyfa okkur að vera með hund! Ef það gengur ekki neyðumst við bara til að flytja !!!! Mig langar svoooo í vúffa ... tala nú ekki um ef Nóttin okkar er kannski að fara að eiga hvolpa :) 

Allavega erum við Henrik sammála um það að okkur langar í eina frk. nóttardóttir ;) hiihihihi... 

Jæja.. best að finna skúringagræjuna fram aftur ... nú er herbergið að verða tilbúið fyrir mömmu.. best að ég geymi þennan þátt fyrir mömmu :) knuz.. Eva


Fæðingarorlofslífið

Já... þá er maður sestur fyrir framan OPRAH ;) ég er með svoooo sniðugt sjónvarp! Ég get tekið upp all sem mig langar úr sjónvarpinu. Get styllt á "taka upp alla seríuna" Svo sæta sjónvarpið tekur upp t.d. alla Oprah þætti, so you think you can dance þætti og ..... allt stelpu sjónvarp sem til er! Svo get ég bara horft þegar mér sínist... SNILLD !!!!

Í gær eyddi ég öllum deginum í tiltekt svo núna á ég smá sjónvarpstíma inni! Hef nú kannski ekki frá miklu að segja... ætla þó að segja ykkur frá smá MÁNAGULLI: Þetta er allt við morgunborðið...

Fyrsti morgun:

Máni: Mamma... þú ert með svo stóra bumbu... eins og bedstemor.

Mamman: Já, ég veit... ég þarf að vera dugleg að fara út að hlaupa.

Annar morgun: (Mamman búin að fara í einn hlaupatúr)

Máni: Það virkar ekki að hlaupa mamma... þú ert ennþá með bumbu?

Mamman: hihih...Jújú... ég þarf bara að hlaupa oft og vera dugleg að borda hollan mat.

Þriðji morgun:

Máni: Mamma.. sérðu bumbuna mína, held ég þurfi að fara út að hlaupa !!!!!

hahahah... þetta þótti  mér svakalega fyndið... Þarf ekki mikið til að gleðja okkur mömmurnar :)

Jæja... nóg í bili...ég hlakka til að hitta mömmu á laugardag og eyða haustfríinu með henni! 

knuz... Eva

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband